Heimildarmynd Í síðustu viku var frumsýnd á HBO Max heimildarmyndin Wise Guy: David Chase and the Sopranos. Í myndinni eru viðtöl við skapara The Sopranos, David Chase, auk leikaranna
James Gandolfini áttu stórleik í The Sopranos.
James Gandolfini áttu stórleik í The Sopranos.

Heimildarmynd Í síðustu viku var frumsýnd á HBO Max heimildarmyndin Wise Guy: David Chase and the Sopranos. Í myndinni eru viðtöl við skapara The Sopranos, David Chase, auk leikaranna. Þar kemur fram að aðstandendur þáttanna og systur Gandolfinis sátu fyrir honum til að reyna að koma honum í meðferð. Þegar hann sá fyrirsátina á hann að hafa sagt: „Aw, fuck this!“ Hann stormaði út og þegar þau reyndu að kalla á eftir honum beindi hann orðum sínum til forstjóra HBO og sagði: „Fire me!“, eða „Rektu mig!“

Gandolfini, sem lést 51 árs árið 2013, hótaði víst daglega að hætta í þáttunum. Sem betur fer þraukaði hann út seríuna sem er ein sú besta í manna minnum.