Ísfell er eitt af leiðandi fyrirtækjum á Íslandi í framleiðslu og hönnun veiðarfæra. Fyrirtækið hefur þróast hratt á síðustu áratugum og hefur átt stóran þátt í að bæta veiðitækni og auka hagkvæmni í íslenskum sjávarútvegi
Með stöðugri nýsköpun og mikilli framleiðslu á sérsniðnum veiðarfærum hefur fyrirtækið Ísfell stuðlað að framförum á þessu sviði á alþjóðlegum vettvangi.
Með stöðugri nýsköpun og mikilli framleiðslu á sérsniðnum veiðarfærum hefur fyrirtækið Ísfell stuðlað að framförum á þessu sviði á alþjóðlegum vettvangi.

Arna Sigrún Haraldsdóttir

arnasigrun@gmail.com

Ísfell er eitt af leiðandi fyrirtækjum á Íslandi í framleiðslu og hönnun veiðarfæra. Fyrirtækið hefur þróast hratt á síðustu áratugum og hefur átt stóran þátt í að bæta veiðitækni og auka hagkvæmni í íslenskum sjávarútvegi. Með stöðugri nýsköpun og framleiðslu á sérsniðnum veiðarfærum hefur Ísfell ekki aðeins haldið velli, heldur einnig stuðlað að framförum á þessu sviði á alþjóðlegum vettvangi.

Nýsköpun leiðir veginn

Guðbjartur Þórarinsson forstjóri Ísfells útskýrir hvernig fyrirtækið hefur tekið miklum framförum frá upphafsárunum. „Á síðustu 30-40 árum hefur orðið gríðarleg þróun í sjávarútvegi, sérstaklega hvað varðar veiðarfæri. Tækniþróun hefur gjörbreytt þeim ferlum sem notaðir eru til hönnunar og framleiðslu veiðarfæra. Ný og betri

...