Barneignir Í forsíðuviðtali við Vanity Fair upplýsir söngkonan og leikkonan Selena Gomez að hún geti ekki gengið með barn. Hún segist hafa þurft að taka sinn tíma í að syrgja eftir þessar fréttir
Selenu Gomez langar í börn en getur ekki gengið með þau sjálf.
Selenu Gomez langar í börn en getur ekki gengið með þau sjálf. — AFP/Valerie Macon

Barneignir Í forsíðuviðtali við Vanity Fair upplýsir söngkonan og leikkonan Selena Gomez að hún geti ekki gengið með barn. Hún segist hafa þurft að taka sinn tíma í að syrgja eftir þessar fréttir.

Gomez segist alltaf hafa séð fyrir sér að verða mamma en hún var greind með sjúkdóminn rauða úlfa árið 2013 og fékk nýtt nýra árið 2017.

„Ég hélt það myndi gerast líkt og hjá öllum öðrum,“ segir hún í viðtalinu og bætir við að hún geti vel hugsað sér að nota staðgöngumóður eða ættleiða. „Hvað sem verður, þá verður barnið alltaf mitt eigið.“