Jóhann Sólberg Marteinsson fæddist 23. febrúar 1932. Hann lést 19. ágúst 2024.

Útför hefur farið fram í kyrrþey.

Elsku pabbi.

Þú varst kletturinn okkar og alltaf hægt að treysta á að þú værir til staðar ef eitthvað bjátaði á.

Það eru margar góðar minningar sem við höfum til að ylja okkur við eins og samverustundirnar í sumarbústaðnum í Grímsnesi þar sem þið mamma unduð ykkur vel innan um allan fallega gróðurinn sem þið höfðuð ræktað, skordýr og fugla en þú varst mikill dýravinur og máttir ekkert aumt sjá.

Hélstu mikið upp á kóngulær og ekki mátti hrófla við vef þeirra, þótt við færum ekki alltaf eftir því.

Einnig áttir þú í sérstöku samband við maríuerlu sem hafði athvarf

...