Íslands- og bikarmeistarar Vals hefja úrvalsdeild kvenna í handbolta af miklum krafti og eru með nítján mörk í plús eftir tvo sannfærandi sigra í fyrstu tveimur umferðunum. Valskonur hófu mótið á níu marka heimasigri á ÍR og í gærkvöld unnu þær mjög …
Endurkoma Lovísa Thompson er komin aftur af stað með Valskonum.
Endurkoma Lovísa Thompson er komin aftur af stað með Valskonum. — Morgunblaðið/Eggert

Handboltinn

Víðir Sigurðsson

vs@mbl.is

Íslands- og bikarmeistarar Vals hefja úrvalsdeild kvenna í handbolta af miklum krafti og eru með nítján mörk í plús eftir tvo sannfærandi sigra í fyrstu tveimur umferðunum.

Valskonur hófu mótið á níu marka heimasigri á ÍR og í gærkvöld unnu þær mjög öruggan sigur á ÍBV í Vestmannaeyjum, 26:16, eftir að staðan hafði verið 10:5 í hálfleik.

Lovísa Thompson er komin á fulla ferð með Val eftir langvarandi meiðsli og hún var markahæst í Eyjum með fimm mörk auk þess sem hún átti þrjár stoðsendingar.

Þórey Anna Ásgeirsdóttir, Thea Imani Sturludóttir og Lilja Ágústsdóttir skoruðu fjögur mörk hver og Hafdís Renötudóttir var með 50 prósent markvörslu en

...