Knattspyrnumennirnir Guðmundur Andri Tryggvason og Stefán Árni Geirsson verða ekki með KR næstu vikurnar vegna meiðsla en Óskar Hrafn Þorvaldsson þjálfari KR staðfesti þetta við Vísi í gær. Guðmundur hefur ekkert leikið með KR síðan hann kom frá Val …
Meiddur Enn verður bið á að Guðmundur Andri spili með KR-ingum.
Meiddur Enn verður bið á að Guðmundur Andri spili með KR-ingum. — Ljósmynd/KR

Knattspyrnumennirnir Guðmundur Andri Tryggvason og Stefán Árni Geirsson verða ekki með KR næstu vikurnar vegna meiðsla en Óskar Hrafn Þorvaldsson þjálfari KR staðfesti þetta við Vísi í gær. Guðmundur hefur ekkert leikið með KR síðan hann kom frá Val um miðjan ágúst og þarf að fara í aðgerð vegna handarbrots. Stefán tognaði aftan í læri í lok júlí og ólíklegt er að hann spili meira í ár en hann hefur aðeins náð að spila fimm leiki í deildinni.