Þórunn Guðmundsdóttir fæddist á Patreksfirði 29. október 1944. Hún lést á Hjúkrunarheimilinu Eyri á Ísafirði 27. ágúst 2024.

Foreldrar hennar voru Sigrún Guðlaugsdóttir, f. 4 júní 1925, d. 2. mars 2012, og Guðmundur Óli Guðmundsson (Óli bakari), f. 24. ágúst 1918, d. 29. maí 1969. Systkini Þórunnar voru Guðmundur, f. 13. október 1949, Guðni Vignir, f. 19. mars 1958, d. 29. desember 1992, og Þorbjörg Tara, f. 9. maí 1959.

Eftirlifandi eiginmaður Þórunnar er Tryggvi Guðmundsson, f. 28. júlí 1945. Foreldrar hans voru Petólína Sigmundsdóttir, f. 16. september 1922, d. 10. október 2006, og Guðmundur Óli Guðjónsson, f. 20. desember 1914, d. 28. maí 1954. Börn Þórunnar og Tryggva eru: 1) Lína Björg, f. 17. júní 1971, sambýlismaður hennar er Vignir Már Sigurðsson, f. 10. janúar 1975. Lína á eina dóttur, Þórunni Hafdísi Stefánsdóttur, f. 5. ágúst 2008.

...