Nýjustu töfrar og vísindi er glæný barnasýning með Lalla töframanni sem frumsýnd verður á morgun, sunnudaginn 15. september, klukkan 13 í Tjarnarbíói. Segir í tilkynningu að um sé að ræða sýningu sem fái börn til að hugsa og að Nýjustu töfrar &…
Grín og gleði Lalli töframaður frumsýnir glænýja sýningu á morgun.
Grín og gleði Lalli töframaður frumsýnir glænýja sýningu á morgun.

Nýjustu töfrar og vísindi er glæný barnasýning með Lalla töframanni sem frumsýnd verður á morgun, sunnudaginn 15. september, klukkan 13 í Tjarnarbíói.

Segir í tilkynningu að um sé að ræða sýningu sem fái börn til að hugsa og að Nýjustu töfrar & vísindi sé stórskemmtileg og fræðandi sýning þar sem Lalli töframaður skoði hvort það sé einhver raunverulegur munur á töfrum og vísindum.

Segir þar jafnframt að sýningar Lalla í Tjarnarbíói hafi heldur betur slegið í gegn síðustu ár hjá barnafjölskyldum og hlotið frábæra dóma gagnrýnenda „… en það má með sanni segja að núna sé Lalli að toppa sig með hreint framúrskarandi skemmtilegri sýningu fyrir börn og fullorðna“.

Tekið er fram að sýningin sé full af skemmtilegum töfrum í bland við vísindatilraunir, grín, gleði og hamingju.

Þá er lengd sýningarinnar 45 mínútur og er hún ætluð börnum þriggja ára og eldri.