Þessi starfsmaður árlegrar haustblómasýningar í Harrogate í Bretlandi átti ekki sjö dagana sæla í gær, þegar hann þurfti að flytja kálhausa til vigtunar. Líkt og sést var meðal annars keppt í stórgrænmetisrækt og var fjöldi risavaxinna kálhausa…
— AFP/Oli Scarff

Þessi starfsmaður árlegrar haustblómasýningar í Harrogate í Bretlandi átti ekki sjö dagana sæla í gær, þegar hann þurfti að flytja kálhausa til vigtunar.

Líkt og sést var meðal annars keppt í stórgrænmetisrækt og var fjöldi risavaxinna kálhausa skráður til keppni, en engum sögum fór af því hver vann.