Naumt Framarar fagna naumum sigri gegn Haukum á laugardag.
Naumt Framarar fagna naumum sigri gegn Haukum á laugardag. — Morgunblaðið/Ólafur Árdal

Fram lagði Hauka með minnsta mun, 27:26, þegar liðin áttust við í 2. umferð úrvalsdeildar kvenna í handknattleik í Úlfarsárdal á laugardag. Fram er í öðru sæti með tvö stig og Haukar í fjórða sæti með tvö stig. Lena M. Valdimarsdóttir skoraði níu mörk fyrir Fram og Elín K. Þorkelsdóttir níu mörk fyrir Hauka. Stjarnan vann þá ÍR, 20:19, er liðin áttust við í Garðabæ á laugardag. Stjarnan er með tvö stig í fimmta sæti og ÍR er í sjöunda sæti án stiga.