Ása Fanney Þorgeirsdóttir fæddist á Ísafirði 16. september 1930. Hún lést á Hrafnistu Laugarási 3. september 2024.

Foreldrar Ásu voru hjónin Jóna Jónsdóttir húsmóðir á Ísafirði, f. á Ísafirði 5. nóvember 1897, d. 4. desember 1991, og Þorgeir Ólafsson sjómaður, f. á Berjadalsá á Snæfjallaströnd 12. febrúar 1898, d. 30. desember 1967. Bræður Ásu eru Ólafur, f. 6. febrúar 1932, d. 9. febrúar 2008, og Jóhann, f. 31. ágúst 1936.

Ása giftist 19. maí 1956 Páli Lúðvíkssyni vélaverkfræðingi, f. 11. mars 1926, d. 31. desember 2004. Páll var sonur hjónanna Alexíu Pálsdóttur, f. 29. maí 1900, d. 20. júní 1976, og Lúðvíks Sigmundssonar, f. 29. júlí 1903, d. 1. janúar 1947.

Börn Ásu og Páls eru: 1) Þorgeir f. 22. október 1956, maki Sesselja Benediktsdóttir og eru synir þeirra eru Ægir Ingólfsson og

...