Enska liðið Liverpool gerði góða ferð til Mílanó og sigraði AC Milan, 3:1, í fyrstu umferð í deildarkeppni Meistaradeildar Evrópu í fótbolta í gærkvöldi. Christian Pulisic kom Milan yfir strax á 3. mínútu en miðverðirnir Ibarahima Konaté og Virgil van Dijk svöruðu fyrir Liverpool fyrir hlé. Dominik Szoboszlai innsiglaði svo sigurinn á 67. mínútu.
Þýska stórliðið Bayern München fór ansi illa með Dinamo Zagreb frá Króatíu í Bæjaralandi, því lokatölur urðu 9:2. Harry Kane skoraði fjögur mörk fyrir Bayern og komu þrjú af þeim af vítapunktinum. Raphaël Guerreiro, Leroy Sané og Leon Goretzka komust einnig á blað.
Ríkjandi Evrópumeistararnir í Real Madrid höfðu betur gegn þýska liðinu Stuttgart á heimavelli, 3:1. Kylian Mbappé, Antonio Rüdiger og Endrick sáu um að gera mörk Real. Deniz Undav skoraði mark
...