Lilja Ásgeirsdóttir fæddist 2. júlí 1973 á Selfossi. Hún lést á heimili sínu 20. október 2024 eftir erfið veikindi.

Foreldrar hennar voru hjónin Ásgeir Jónsson, f. 22. mars 1942, og Helga María Halldórsdóttir, f. 6. mars 1936, d. 27. nóvember 2023. Systkini Lilju eru Halldór, f. 26.1. 1969, Guðrún, f. 8.9. 1971, og Bjarney, f. 28.5. 1975.

Eftirlifandi eiginmaður Lilju er Steindór Eiríksson, f. 28.8. 1970. Börn Lilju og Steindórs eru Helga María, f. 3.7. 1998, og Elías Pétur, f. 4.10. 2005.

Lilja ólst upp ásamt systkinum í foreldrahúsum í Hveragerði og gekk í grunnskóla þar. Hún fór kornung að vinna við barnapössun ásamt því að vinna við garðyrkju á sumrin. Að grunnskóla loknum las hún til stúdentsprófs frá Fjölbrautaskóla Suðurlands. Hún vann á sambýlinu Vallholti samhliða námi og

...