Musteri íslenskrar tungu 70 ára
Þjóðleikhúsið var vígt sumardaginn fyrsta, 20. apríl 1950, 21 ári eftir að fyrsta skóflustungan var tekin. Í tilefni af 70 ára afmæli Þjóðleikhússins leitaði Silja Björk Huldudóttir til allra þeirra sem gegnt hafa stöðu þjóðleikhússtjóra og bað þau svara því: 1) Hver hafi verið mesta áskorun þeirra í starfi. 2) Af hverju þau væru stoltust í sinni leikhússtjóratíð. 3) Hvert þau teldu mikilvægi Þjóðleikhússins í samtímanum.
„Veitti mikla lífsgleði“
Guðlaugur Rósinkranz var fyrstur til að gegna stöðu þjóðleikhússtjóra. Hann var skipaður í embætti árið 1949 og gegndi starfinu til 1972 þegar hann lét af störfum sökum aldurs. Ráðning Guðlaugs kom nokkuð á óvart á sínum tíma þar sem hann var ekki menntaður á sviði leiklistar, en hann reyndist engu að síður farsæll í starfi. Guðlaugur lést 74 ára að aldri árið 1977.