Uppskurður en ekki niðurskurður

Þórdís Kolbrún í Alþingisgarðinum, en hún hyggst áfram gefa kost …
Þórdís Kolbrún í Alþingisgarðinum, en hún hyggst áfram gefa kost á sér í Norðvesturkjördæmi. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon

Það er ótrúlegt að hugsa til þess hve margt hefur breyst í ferðaþjónustu, bara frá því að ég steig inn í þetta ráðuneyti í janúar 2017, sem núna virðist heil eilífð. Þá snerust helstu verkefnin um vaxtarverki í ferðaþjónustu: Sums staðar var of margt fólk á tilteknum ferðamannastöðum, svo við þurftum að gæta bæði að náttúrunni og upplifun ferðamanna.

Núna erum við hins vegar í einhverjum allt öðrum veruleika. Það á auðvitað við um þjóðlífið allt, en sérstaklega ferðaþjónustuna og hún mun ekki spretta upp aftur og óbreytt eins og ekkert hafi í skorist þegar faraldurinn er genginn yfir. En við erum búin að byggja upp mikla innviði og þeir eru hér og standa áfram.“

Eru öll klósettin komin?

„Tja, við erum ennþá með nokkra kamra, en við höfum sett mikla fjármuni í uppbyggingu innviða, sem var ekki vanþörf á, en það þarf auðvitað að gæta þess – og það er ástæðan fyrir hluta af þessum aðgerðum stjórnvalda – að við slökkvum ekki...