Vill græna hvata í samgöngumálum
„Borgarstjórn er sú stofnun í íslensku samfélagi sem mælist með minnst traust, eða 17%. Borgarkerfið er brotið, óráðsían gríðarleg og verkefnin framundan ærin. Svo kjörnir fulltrúar geti fengið skýrt umboð til að leiða mikilvægar breytingar í borginni þarf traust. Við verðum því að ræða starfsumhverfið og færa orðræðuna til betri vegar,“ segir Hildur Björnsdóttir borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins.
„Upplifun mín af hinu pólitíska umhverfi í borgarstjórn er svolítið undarleg. Hafandi kynnst heimi lögmennskunnar, sem felur auðvitað í sér rökstuddan ágreining um hvers kyns málefni, er svolítið sérstakt að upplifa umræðuhefðina innan borgarstjórnar. Þetta eru ómálefnaleg átök og upphrópanir oft og tíðum.“
Stórmerkilegt að lenda í minnihluta
Í síðustu kosningum fékk Sjálfstæðisflokkurinn 30,8% greiddra atkvæða og 8 fulltrúa í borgarstjórn, en er eigi að síður í minnihluta „... sem er auðvitað stórmerkileg...