Kindur hafi meiri rétt en landeigandi

Morgunblaðið/Eggert

Breyting sem gerð var á lögum um búfjárhald 2002 veitti kindum í lausagöngu í raun beitarrétt á um einni milljón hektara af löndum í eigu annarra en fjáreigenda, að mati Jóns Guðmanns Péturssonar viðskiptafræðings. Hann er jarðeigandi og stundar skógrækt á jörð sinni. Jón Guðmann telur að með þessu ákvæði hafi verið brotið á eignarrétti sínum og óviðkomandi leyft að nýta gögn og gæði jarðarinnar.

Jón Guðmann varð fyrir því að kindur í eigu annarra fóru inn í skógræktina á jörð hans. Hann vildi að þær yrðu fjarlægðar og afhentar eigendum sínum. Sveitarfélagið vildi ekki gera neitt og ekki heldur lögreglan þegar til hennar var leitað.

„Ég talaði við matvælaráðuneytið um hvaða úrræði ég hefði og fékk að vita að ég mætti ekki trufla rollurnar,“ segir Jón Guðmann. „Þær ættu umgengnis- og beitarrétt í skógræktinni hjá mér og á jörðinni minni eins og reyndar á öllum öðrum jörðum sveitarinnar og þar með talið á golfvellinum!“

Hann kvartaði...