Barbara Wade

Barbara Wade

Kaupa Í körfu

Hin færeysk/danska Barbara Wade kom til Íslands í fyrsta skipti nú í janúar til að heilsa upp á ættingja sína sem hún hafði aldrei hitt. Færeysk ömmusystir hennar, Ingeborg, fluttist hingað til lands á fyrri hluta síðustu aldar, giftist íslenskum manni, Vigfúsi Guttormssyni, og átti með honum sex börn. Barbara er ánægð með ferðina þar sem hún hitti afkomendur Ingeborgar og Vigfúsar. "Ég virðist eiga fleiri skyldmenni hér en í Danmörku," segir hún og hlær, en Barbara býr í Kaupmannahöfn. MYNDATEXTI: Barbara Wade: Kom til Íslands til að hitta ættingja og kynnti skartgripina sína í leiðinni.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar