Pósturinn flytur

Ásdís Ásgeirsdóttir

Pósturinn flytur

Kaupa Í körfu

PÓSTHÚS Íslandspósts í Kópavogi, sem var við Digranesveg 9, hefur verið flutt í verslunina Nóatún í Hamraborg 18. Í frétt á heimasíðu Íslandspósts segir að samstarf fyrirtækisins við verslanir á landsbyggðinni hafi reynst vel. Sú þróun hafi nú einnig verið sett í framkvæmd á höfuðborgarsvæðinu. Nú þegar sé póstafgreiðsla í Nettó í Mjódd, í Nóatúni að Rofabæ í Árbæ, í Nóatúni að Hverafold í Grafarvogi, Nóatúni á Reykjavíkurvegi í Hafnarfirði og Nóatúni í Mosfellsbæ. MYNDATEXTI: Nú er boðið upp á póstþjónustu Íslandspósts í Nóatúni í Hamraborg 18.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar