90 ára afmæli Morgunblaðsins
Kaupa Í körfu
Glatt var á hjalla í Morgunblaðshúsinu við Kringluna í gær, þegar haldið var upp á 90 ára afmæli Morgunblaðsins. Fyrsta tölublaðið kom út 2. nóvember 1913. Starfsfólki og börnum þess var fyrst boðið á leikritið um hina sívinsælu Línu Langsokk í Borgarleikhúsinu og síðan var haldið yfir götuna inn í húsakynni Morgunblaðsins þar sem kaffi, djús og kökur biðu gestanna. Moggablöðrurnar voru vinsælar hjá börnunum og vitaskuld risasúkkulaðikaka með gúmmíbjörnum og smartís. Í tilefni dagsins kom einnig út blaðauki með sunnudagsblaði Morgunblaðsins þar sem fjallað var vítt og breitt um starfsemi blaðsins frá upphafi til vorra daga. Myndatexti: Í anddyri Morgunblaðsins biðu veitingar gestanna. Var margt um manninn og Moggablöðrurnar settu einnig skemmtilegan svip á samkomuna þegar þær svifu yfir höfðum afmælisgestanna á meðan kökur voru skornar.
Arnþór Birkisson
Skoða myndirÁrni Sæberg
Skoða myndirÁsdís Ásgeirsdóttir
Skoða myndirEggert Jóhannesson
Skoða myndirEmilía Björg Björnsdóttir
Skoða myndirGolli / Kjartan Þorbjörnsson
Skoða myndirJúlíus Sigurjónsson
Skoða myndirKristinn Ingvarsson
Skoða myndirKristinn Magnússon
Skoða myndirÓlafur K. Magnússon
Skoða myndirÓmar Óskarsson
Skoða myndirRax / Ragnar Axelsson
Skoða myndirHelgi Sigurðsson
Skoða myndirÍvar Valgarðsson
Skoða myndirKristinn Pálsson
Skoða myndir