Hótel Selfoss og nágrenni

Hótel Selfoss og nágrenni

Kaupa Í körfu

NÝIR eigendur Hótels Selfoss, sem keyptu hótelið af þrotabúi Brúar hf. á þriðjudag, munu opna hótelið hinn 15. janúar 2004 undir rekstrarlegri stjórn Brúnáss ehf. Aðaleigendur Brúnáss eru Gísli Steinar Gíslason, Ólafur Auðunsson og Jón Gunnar Aðils. Hótelið verður lokað á meðan gerðar verða endurbætur á húsnæði hótelsins við Eyrarveg 2 á Selfossi. Verið er að ganga frá ráðningu hótelstjóra og yfirmatreiðslumanns. Brúnás hefur gert samstarfssamning við Flugleiðahótel hf. um viðskiptasérleyfi sem felur í sér að hótelið verður hluti af Icelandair Hotels-keðjunni.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar