Fjáröflun nemenda í Reykjahlíðarskóla

Birkir Fanndal Haraldsson

Fjáröflun nemenda í Reykjahlíðarskóla

Kaupa Í körfu

Nemendur Reykjahlíðarskóla voru að flokka drykkjarumbúðir um helgina. Þetta gera þeir í fjáröflunarskyni vegna árlegrar skólaferðar, sem farin verður fyrri partinn í maí. Að þessu sinni hefur þeim áskotnast eitthvað yfir 6 þúsund umbúðir. Síðast fór slík söfnun fram skömmu eftir áramót þannig að hér er fjögurra mánaða frákast neysluþjóðfélagsins. Nemendurnir safna umbúðum um alla sveit þannig að segja má að eftir sérhvern Mývetning liggi hér þrettán drykkjarumbúðir.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar