Göngugarpar

Göngugarpar

Kaupa Í körfu

Ég bý í Selásnum, þannig að það var tilvalið að fara þarna upp eftir og hitta Siggu vinkonu og labba þarna í kring," segir Sóley Möller. Nefnd vinkona vinnur hvergi annars staðar en á Morgunblaðinu og nefnd staðsetning er einmitt hið nýja heimilisfang Morgunblaðsins í Hádegismóum, rétt við Rauðavatn. Hádegið flesta daga nýta nokkrar vinkonur til að hittast og ganga saman, hvernig sem viðrar, og með þeim í för er alltaf einn hundur, stundum tveir. MYNDATEXTI: Göngugarpar - Guðrún Möller, Sóley Möller, Sigríður H. Karlsdóttir og Þuríður Linda Auðunsdóttir.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar