Stjarnan - Haukar

Stjarnan - Haukar

Kaupa Í körfu

Íslandsmeistarar Hauka hófu titilvörnina í N1-deild karla í handknattleik á vægast sagt ósannfærandi hátt þegar þeir mættu Stjörnumönnum í Mýrinni í opnunarleik Íslandsmótsins í gærkvöldi. Haukar mörðu sigur, 17:16, í afar slökum kappleik þar sem leikmenn beggja liða gerðu sig seka um aragrúa af mistökum og sóknarleikurinn sem boðið var upp á var hrein hörmung. MYNDATEXTI Freyr Brynjarsson, leikmaður Íslandsmeistaraliðs Hauka, reynir skot að marki Stjörnunnar í gær.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar