Innkaupakerrur

Kristján H. Johannessen

Innkaupakerrur

Kaupa Í körfu

Sóðalegt er um að litast við endur- vinnslustöð Sorpu við Ánanaust í Reykjavík. Má þar ósjaldan sjá mikinn fjölda af innkaupakerrum og vöruvögnum sem einstaklingar hafa tekið ófrjálsri hendi frá nærliggjandi verslunum. Íbúi í hverfinu hafði nýverið samband við Morgunblaðið og lýsti yfir óánægju sinni með ástandið. Sagði hann fólk daglega koma með kerrurnar fullar af dós- um í Sorpu og skilja þær svo eftir við útganginn. Undrast hann jafn- framt afskiptaleysi starfsmanna Sorpu og að einstaklingum sé leyft að ganga inn á endurvinnslusvæð- ið með kerrur sem augljóslega tilheyrðu þeim ekki. Meðfylgjandi mynd var tekin sl. fimmtudag og voru þá tugir inn- kaupakerra við Sorpu.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar