Ali G. í nýja miðbænum

Ali G. í nýja miðbænum

Kaupa Í körfu

Dimmetering hjá HM - Menntaskólinn við Hamrahlíð Það er eflaust vorboði í huga margra þegar útskriftarnemar í framhaldsskólum landsins birtast í undarlegum búningum að skemmta sér í miðbæ Reykja- víkur. Þeir sem lögðu ferð sína um miðbæinn í gær gátu virt fyrir sér ungmenni klædd í ýmiss kon- ar búninga hlaupandi um að leysa alls kyns þrautir og safna stigum. Eins og jafnan á dimmissjón brugðu krakkarnir sér í hin ýmsu gervi og mátti meðal annars sjá sjómenn, dalmatíuhunda, bjór- flöskur og nunnur á flakki. Heppnin var með krökkunum, en hæglætisveður var í mið- borginni í gær og lét sólin glitta í sig annað slagið. Ekki er annað hægt að segja en að gleðin hafi verið við völd, enda kennslu lokið og stúdentsprófin ein sem bíða þeirra fyrir útskrift og sumarfrí.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar