Þung umferð eftir snjókomu dagsins

Þung umferð eftir snjókomu dagsins

Kaupa Í körfu

Snjór, hálka og rafmagnsleysi settu allt úr skorðum í höfuðborginni Langar bílalestir voru áberandi á höfuðborgarsvæðinu síðdegis í gær þegar mikil snjókoma og hálka urðu til að setja umferðina úr skorðum. Ferð sem alla jafna tekur um 20-30 mínútur tók um tvo klukkutíma þegar ástandið var sem verst. Ekki náðu allir á áfangastað og urðu árekstrar fjölmargir, en engin alvarleg meiðsli hlutust af. Rafmagni sló einnig út og umferðarljós urðu óvirk, en straumleysið varði þó aðeins um stund. Rólegra veðurs má nú vænta en þó vetrarveðurs með éljum eða snjókomu.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar