Grindavík - Maður fell í sprungu

Grindavík - Maður fell í sprungu

Kaupa Í körfu

Leita nótt sem nýtan dag í sprungunni við Grindavík Öll tæki og tól hafa verið nýtt til þess að reyna að finna mann sem féll niður í sprungu í Grindavík á miðvikudag. Sprungan er um 20-30 metra djúp og settu viðbragðsaðilar landgang niður að sprungunni til að auðvelda störf. Neðst í sprungunni er vatn sem talið er vera um 13 metra djúpt og hafa viðbragðsaðilar ekki kafað í því heldur er not- ast við neðansjávardróna. Aðstæður þykja of erfiðar fyrir kafara niðri í vatninu. Úlfar Lúðvíksson, lögreglustjóri á Suðurnesjum, sagði í samtali við mbl.is að leitað yrði í Grindavík þar til maður- inn fyndist en leit hafði ekki borið árangur þegar blaðið fór í prentun í gærkvöldi. Á þriðja hundrað manns hafa komið að leitarstörfum frá því á miðvikudag. Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi Landsbjargar, sagði í samtali við mbl.is að björgunarsveitirnar á Suðurnesjum hefðu hlotið liðstyrk frá björgunarsveitum af Faxaflóasvæðinu og Suðurlandsundirlendinu

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar