Undirbúningur Reykjavíkurmaraþonið

Undirbúningur Reykjavíkurmaraþonið

Kaupa Í körfu

Undirbúningur Reykjavíkurmaraþonið og menningarnótt Það var allt að verða klárt í miðborginni síðdegis í gær þegar ljósmyndari Morgunblaðsins var á ferðinni. Mikil vinna fer í að gera hlaupabrautina klára, enda lokað fyrir umferð um fjölda gatna á meðan Reykjavíkurmaraþonið fer fram. Grindur, fánar, drykkjarstöðvar og síðast en ekki síst rásmark þarf að vera á sínum stað þegar hlauparar eru ræstir kl. 8.40. Fyrstir af stað eru þeir sem hlaupa lengst, heilt maraþon. Þeir sem hlaupa hálfmaraþon eru ræst ir klukkustund síðar ásamt þeim sem ætla að fara 10 kílómetra. Klukkan tólf á hádegi nær hlaupafjörið svo hámarki þegar ræst er af stað í skemmtiskokk ið. Þar hafa hlauparar um tvær vegalengdir að velja, 1,7 eða 3 km

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar