Hundur í glugga á annarri hæð

Ásdís Ásgeirsdóttir
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Hundur í glugga á annarri hæð

Kaupa Í körfu

Þegar haustið læðist að og sólargeislarnir hverfa hraðar með degi hverjum í hafdjúpið fjölgar stundunum sem menn og dýr dvelja innandyra. Þó er rétt af og til að gá til veðurs og kanna mannlífið úti í haustinu, eins og þessi seppi gerði í vesturbænum. Af svipnum má þó ráða að tilveran sé hálfgert hundalíf þessa dagana.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar