Dagbók ljósmyndara
Kaupa Í körfu
Kristur í auglýsingahafinu Cochin, Kerala, 18. janúar Tröllvaxinn Kristur stendur á meðal auglýsingaskilta á götuhorni í Cochin. Og fleiri slíkar myndir má sjá út um borgina. Kristnir söfnuðir kunna að hafa náð einhverjum árangri með herferðinni, í það minnsta er kristni hvergi útbreiddari á Indlandi en fimmtungur íbúanna aðhyllist trúna. Sagan segir að heilagur Tómas hafi komið til Kerala árið 52 og byggt fyrstu kirkjurnar í landinu. Árið 345 var grunnur lagður að starfi sýrlensk-kristnu kirkjunnar í fylkinu, en hún stendur enn traustum fótum, og portúgalir hófu kaþólskt kristniboð árið 1542 og varð einnig vel ágengt. Þessir kristnu söfnuðir starfa hér hlið við hlið og hafa greinilega átt þátt í að skapa hér menningu sem er ólík þeirri sem finnst annarsstaðar í landinu, meðal annars hefur stéttskiptingin verið afnumin með lögum í opinberu lífi. INDLAND
Arnþór Birkisson
Skoða myndirÁrni Sæberg
Skoða myndirÁsdís Ásgeirsdóttir
Skoða myndirEggert Jóhannesson
Skoða myndirEmilía Björg Björnsdóttir
Skoða myndirGolli / Kjartan Þorbjörnsson
Skoða myndirJúlíus Sigurjónsson
Skoða myndirKristinn Ingvarsson
Skoða myndirKristinn Magnússon
Skoða myndirÓlafur K. Magnússon
Skoða myndirÓmar Óskarsson
Skoða myndirRax / Ragnar Axelsson
Skoða myndirHelgi Sigurðsson
Skoða myndirÍvar Valgarðsson
Skoða myndirKristinn Pálsson
Skoða myndir