Samson eignarhaldsfélag

Samson eignarhaldsfélag

Kaupa Í körfu

Samson eignarhaldsfélag stefnir að því að efla þjónustu Landsbanka Íslands og fjölga viðskiptavinum bankans, jafnt hér á landi sem erlendis. Fram kom á blaðamannafundi sem eigendur Samsonar eignarhaldsfélags efndu til í gær að þeir eigi ekki von á því að starfsfólki Landsbankans eða útibúum verði fækkað í kjölfar kaupa félagsins á 45,8% hlut ríkisins í bankanum. Umtalsverð hagræðing hafi átt sér stað hjá bankanum á undanförnum árum og möguleikunum til að gera meira í þeim efnum hafi fækkað. Þá kom fram að kaup Landsbankans á Heritable-bankanum í London hafi að mati Samsonar tekist vel og séu hugsanlega dæmi um það sem koma skal. Myndatexti: Magnús Þorsteinsson, Björgólfur Thor Björgólfsson og Björgólfur Guðmundsson, eigendur Samsonar eignarhaldsfélags.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar