Hringtorg

Kristján Kristjánsson

Hringtorg

Kaupa Í körfu

Þau voru heldur kuldaleg við vinnu sína, Guðrún K. Björgvinsdóttir og Jóhann Thorarensen, starfsmenn Framkvæmdamiðstöðvar Akureyrar. Þau voru í óða önn að raða litlum rauðum steinum á hringtorgið á mótum Hlíðarbrautar og Borgabrautar. Þar hefur verið ráðist í lagfæringar, með það að markmiði að draga úr umferðarhraða um hringtorgið. Settur hefur verið kantur á milli steinanna og vegarins og voru þau Guðrún og Jóhann að raða steinunum aftur á sinn stað eftir breytingarnar.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar