Borgarleikhúsið - 9 ára börn skoða húsið

Þorkell Þorkelsson

Borgarleikhúsið - 9 ára börn skoða húsið

Kaupa Í körfu

Skyggnast á bak við tjöldin í leikhúsinu NÚ er hafið í Borgarleikhúsinu fræðslustarf meðal grunnskólabarna, undir yfirskriftinni Heimsókn í leikhúsið. Þetta er áttunda árið í röð sem Leikfélag Reykjavíkur stendur fyrir slíkri fræðslustarfsemi. Öllum fjórðabekkjarbörnum á höfuðborgarsvæðinu og víðar (frá Hvítá í Borgarfirði að Hvítá eystri) er boðið að koma og kynnast því hvernig starfað er í leikhúsinu. Búist er við að 2.000 börn heimsæki leikhúsið nú í nóvember.MYNDATEXTI: Hér á meðal skólabarna gætu leikarar framtíðarinnar verið.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar