Afganistan

Þorkell Þorkelsson

Afganistan

Kaupa Í körfu

Afganska þjóðin er nú að reisa land sitt úr rústum eftir langvarandi ófrið og afleiðingar jarðskjálfta. Ofan á það bættust miklir þurrkar. Alþjóðlegar hjálparstofnanir leggja lið við úrlausn óteljandi ................. Tilgangur farar Þorkels til Afganistans í desember síðastliðnum var að fylgjast með hjálpar- og uppbyggingarstarfi Rauða krossins og Rauða hálfmánans. Leiðin lá fyrst til Kabúl, höfuðborgar landsins. Þá var ekki nema tæpt ár liðið frá því Hamid Karzai sór embættiseið sem forsætisráðherra í nýrri bráðabirgðastjórn Afganistans. Var það í fyrsta sinn í marga áratugi sem valdaskipti fóru fram í landinu með friðsamlegum hætti. ...... Frá því bráðabirgðastjórnin tók við völdum 22. desember 2001 hafa mikil umskipti orðið í Afganistan MYNDATEXTI: Miklir þurrkar hafa gengið yfir suðurhluta Afganistans undanfarin fimm ár. Mohammad Rasool Shir Ahmed bóndi gengur hér um skrælnaða vínekru sína nálægt Kandahar. Bændurnir hafa sagað stofnana af rótum vínviðarins í von um að ræturnar lifi þurrkana af. Vínyrkja var töluverð á þessu svæði og berin borðuð ný, en þess ekki beðið að safinn gerjaðist og yrði að víni

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar