Hin fimm ára gamla North West, dóttir Kim Kardashian og Kanye West, vakti sérstaka athygli á jólakveðju frá fjölskyldunni enda með eldrauðan varalit á myndunum. Ekki voru allir sammála um uppeldisaðferðir Kardashian-West-fjölskyldunnar.
Puntaði North sig upp áður en hún mætti í rándýra veislu ömmu sinnar á aðfangadagskvöld. Móðir hennar greindi frá því á Twitter að hún hefði valið varalitinn sjálf og þetta hefði verið sérstakt tilefni.
Snyrtivöruáhuginn rennur greinilega í blóðinu og er þetta ekki í fyrsta skipti sem dóttir raunveruleikastjörnunnar vekur athygli fyrir að ganga með snyrtivörur. Kim Kardashian hefur áður þurft að verja það að hún leyfi dóttur sinni að ganga með snyrtivörur. Segir hún hana til dæmis ekki hafa leyfi til þess að ganga með gerviaugnhár né mjög dökkan varalit.