Körfuboltahetjan Kobe Bryant og Vanessa Laine Bryant eiginkona hans til margra ára tilkynnti á nýársdag að þau ættu von á fjórða barninu sínu saman.
Fyrir eiga þau þrjár dætur. Parið gifti sig árið 2001 en lenti í erfiðleikum í hjónabandinu árið 2011. Systurnar eru spenntar að fá eitt barn í viðbót í fjöldkylduna að sögn foreldranna og tala þau um mikla blessun þessu tengda. Dætur þeirra eru Natalia sem er fimmtán ára, Gianna sem er 12 ára og Bianka sem er 2 ára.