Þórir Leó Kristjánsson söng lagið Dansaðu vindur í fyrsta þættinum af Jólastjörnunni sem sýndur var á Sjónvarpi Símans á sunnudag.
Sjónvarp Símans, mbl.is, Góa, KFC og Sena Live standa fyrir Jólastjörnunni 2022, söngkeppni fyrir unga snillinga sem nú er haldin ellefta árið í röð.
Sigurvegarinn kemur fram í Laugardalshöllinni með aragrúa af stjörnum 17. desember á stórtónleikunum Jólagestir Björgvins.
Annar þáttur verður sýndur nú á Sjónvarpi Símans á sunnudaginn, 4. desmeber og sá þriðji 11. desember.