Gerðu upp árið á markvissan hátt

Edda Jónsdóttir leiðtogamarkþjálfi hjá Edda Coaching.
Edda Jónsdóttir leiðtogamarkþjálfi hjá Edda Coaching. mbl.is/Aldís Pálsdóttir

„Áramót eru tilvalinn tími til að líta um öxl og gera upp árið sem er senn á enda. Ef til vill hefur þetta verið heillavænlegt ár og þú notið þín til fullnustu. Nú eða árið hefur fært þér áskoranir og jafnvel sorgir. Kannski hefur árið verið tíðindalítið og líf þitt leiðigjarnt,“ segir Edda Jónsdóttir leiðtogamarkþjálfi í sínum nýjasta pistli: 

Gerum upp árið

Hvað svo sem einkenndi árið í þínu lífi, er kominn tími til að gera það upp. Það er nauðsynlegt að staldra við áður en þú horfir fram á veginn og leggur drög að því sem koma skal á nýju ári.

Ég tók saman nokkrar spurningar til að hjálpa þér. Þú getur annað hvort svarað spurningunum með því að skrifa svörin niður eða búið þér til skjal í tölvunni og svarað spurningunum þar. Gættu þess bara að svara skriflega (en ekki bara í huganum meðan þú lest pistilinn) því þannig fæst bestur árangur.

1. Skrifaðu niður með hvaða hætti þú hefur fjárfest tíma þínum, orku og peningum á árinu. Stundum reynist raunveruleikinn frábrugðinn því sem við ætluðum okkur.

a. Hvað tók mest pláss í dagatalinu?
b. Í hverju fjárfestirðu í ár?

2. Berðu kennsl á og haltu upp á það sem þú hefur afrekað, jafnvel þó þér finnist það smávægilegt. Okkur hættir til að gera lítið úr framförum okkar.

a. Hverjir voru þínir stærstu sigrar á þessu ári?
b. Hvað geturðu þakkað fyrir?
c. Í hverju tókstu áhættu?
d. Hvaða verkefni eða atburðir hafa haft mesta þýðingu?
e. Hvaða verkefnum laukstu ekki á þessu ári?
f. Hvað er það sem þú gleðst yfir að hafa áorkað?

3. Komdu auga á það sem þú getur lært af reynslunni og hvernig þú getur nýtt þér þann lærdóm á komandi ári. Reynslan er besti kennarinn ef við nýtum hana okkur til góðs.

a. Hvaða orð eða setning lýsir best reynslu þinni á þessu ári?
b. Hvað lærðirðu í tengslum við fyrirtækið þitt eða frama þinn á þessu ári?

Markmið fyrir 2018

Nú þegar þú hefur gert upp það sem er liðið, er kominn tími til að leggja drög að því sem þú ætlar þér á nýju ári.

Eins og flestir vita er munur á markmiðum og áramótaheitum. Munurinn er sá að markmiðum fylgir tímasett framkvæmdaáætlun. Napoleon Hill lýsti því ágætlega þegar hann sagði að markmið væru draumar með tímafresti. En það er einmitt tímafresturinn sem greinir á milli drauma og markmiða.

Áramótaheitum er hins vegar oft fleygt fram án þess að þeim fylgi sú alvara sem er nauðsynleg til að þeim verði framfylgt. Rannsóknir hafa sýnt að örfáir standa við áramótaheit en hins vegar eru 95% líkur á að þú náir markmiðum þínum ef þú setur þau fram á eftirfarandi hátt.

Markmiðasetning sem virkar

Vissir þú að aðeins um 5% fólks skrifar niður markmiðin sín og gerir áætlun um að fylgja eftir draumum sínum? Hver sem ástæða þess kann að vera, er þér ekkert til fyrirstöðu. Það er nefnilega gott að vera í þeim minnihlutahópi sem skrifar niður markmiðin sín og hrindir þeim í framkvæmd.

Svona seturðu þér markmið skref fyrir skref:

  1. Skilgreindu markmiðið? Hafðu nákvæmnina að leiðarljósi.
  2. Hvað er það fyrsta sem þú þarft að gera?
  3. Brjóttu markmiðið niður skref fyrir skref. Það reynist auðveldara að fylgja því eftir þannig.
  4. Gerðu markmiðið þitt mælanlegt (hversu mikið, hversu margir o.s.frv.)
  5. Hvernig muntu geta náð markmiðinu þínu? 
  6. Þarftu utanaðkomandi stuðning til að ná markmiðinu þínu?(eða verður auðveldara og skemmtilegra að ná því ef aðrir styðja þig?)
  7. Hvenær verður markmiðið orðið að veruleika? (dagsetning og ártal)

 

Eitt ráð að lokum. Þegar markmiðasetning er annars vegar er gott að hafa í huga að ferðalagið er jafn mikilvægt og áfangastaðurinn. Einnig er góð hvatning að fagna áfangasigrunum og deila gleðinni þegar vel gengur.

Ég þakka lesendum samfylgdina á árinu sem er að líða og óska gleði og farsældar á nýju ári.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál