Eiginkonur landsliðsmanna á hörkuæfingu

Kristbjörg Jónasdóttir, Guðlaug Elísa Jóhannsdóttir, Sigurbjörg Hjörleifsdóttir, Jóna Vestfjörð og …
Kristbjörg Jónasdóttir, Guðlaug Elísa Jóhannsdóttir, Sigurbjörg Hjörleifsdóttir, Jóna Vestfjörð og Ása María Reginsdóttir.

Eiginkonur og unnustur landsliðsmanna íslenska landsliðsins þær Kristbjörg Jónasdóttir, Guðlaug Elísa Jóhannsdóttir, Jóna Vestfjörð, Sigurbjörg Hjörleifsdóttir og Ása María Reginsdóttir eru duglegar að æfa. Í morgun skelltu þær sér saman í ræktina í morgun en þær eru staddar í Moskvu í Rússlandi. Það kom í hlut Kristbjargar, eiginkonu Arons Einars Gunnarssonar, að þjálfa hópinn. Kristbjörg er einkaþjálfari og hefur notið mikillar velgengni á fitness-sviðinu. Smartland fékk að skyggnast á bak við tjöldin. 

„Við erum búnar að vera að fara saman einhverjar af okkur á æfingu a morgnana, aðeins að hreyfa okkur og koma okkur af stað í daginn. Èg er svo heppin að hafa fengið að pína þær áfram og hef haft heldur betur gaman af því,“ segir Kristbjörg.

Stelpurnar eru grjótharðar og gefa ekkert eftir. 

„Þær eru hörkuduglegar og alveg tilbúnar í eitthvað „challenge“ sem gerir það ennþá skemmtilegra. Èg hef sagt það áður að þó svo að èg sè byrjuð með Stronger online prógrammið mitt þá sakna ég þess oft að vera ekki með þeim sem ég er að þjálfa,“ segir hún. 

Á æfingunni í morgun lagði Kristbjörg áherslu á rassa-æfingar en annars hafa þær gert sitt lítið af hverju. 

„Við erum ennþá í Moskvu en við förum yfir til Volgograd a fimmtudaginn. Moskva er ótrúlega falleg borg og er búin að koma flestum hèrna á óvart. Eina sem er hægt að kvarta yfir er að það tala alls ekki margir ensku og þá getur verið erfitt að bjarga sér hvort sem það er a matsölustað eða að taka leigubil. En það reddast nú yfirleitt. Ferðin byrjar allavega ótrúlega vel og ekki hægt að kvarta,“ segir Kristbjörg. 

Mega fjör í Moscow 😜

A post shared by Guðlaug Elísa (@gudlaugelisa) on Jun 19, 2018 at 10:26am PDT

Ása María Reginsdóttir tekur á því. Hún er gift Emil …
Ása María Reginsdóttir tekur á því. Hún er gift Emil Hallfreðssyni.
Kristbjörg gerir æfingar með teygjum sem hún selur á www.kristj.is.
Kristbjörg gerir æfingar með teygjum sem hún selur á www.kristj.is.
Jóna Vestfjörð gerir æfingar með teygju frá Kristbjörgu.
Jóna Vestfjörð gerir æfingar með teygju frá Kristbjörgu.
Guðlaug Elísa Jóhannsdóttir tekur á því.
Guðlaug Elísa Jóhannsdóttir tekur á því.
Kristbjörg segir að æfingin verði áhrifaríkari með teygjunum.
Kristbjörg segir að æfingin verði áhrifaríkari með teygjunum.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál