Fyrirsætan Hailey Baldwin, eiginkona Justin Bieber, er dugleg að mæta í ræktina enda ekki nóg að vera bara hávaxin og mjó það þarf líka að vera með vöðva. Fyrirsætan sýndi styrk sinn og hvernig hún æfir á myndbandi sem líkamsræktareigandinn Kirk Myers birti á Instagram.
Líkamsrækt Myers er vinsæl meðal stjarnanna og hann þekktur fyrir að þjálfa ofurfyrirsætur. Myndbandið sem Myers birti rétt fyrir áramót en er þó ekki glænýtt sýnir Baldwin og fyrirsætuna Camilu Morrone gera æfingu í þremur liðum sem reynir á allan líkamann, miðju, hendur og fætur.
Æfingin er mögulega eitthvað til að prófa á nýju ári. Hér að neðan má sjá fyrirsæturnar framkvæma æfingarnar.