64 ára og stendur á haus

Katie Couric er 64 ára og stendur á haus eins …
Katie Couric er 64 ára og stendur á haus eins og að drekka vatn. Skjáskot/Instagram

Sjónvarpskonan Katie Couric er í fantaformi og vílar ekki fyrir sér að standa á haus eftir pílatestíma. Couric setti sér fyrir nýja áskorun í heimsfaraldrinum og ákvað að fara að stunda pílates heima af krafti. 

Couric deildi mynd af sér á Instagram í vikunni þar sem hún stendur á haus. „Já. Þetta er ég,“ skrifaði sjónvarpskonan og bætti nokkrum myllumerkjum við, meðal annars aldri sínum. 

Í viðtali sem Couric tók við Ashley Patten, pílatesþjálfarann sinn, í febrúar á þessu ári ræddi hún um pílatesvegferð sína. Couric sagði Patten meðal annars hafa hjálpað sér að uppgötva mittið á sér aftur. 

Auk pílatesþjálfunarinnar hefur Couric prófað sig áfram með mataræðið í heimsfaraldrinum. Í byrjun prófaði hún ketó. Seinna skipti hún yfir í svokallað pegan-mataræði sem er blanda af vegan- og steinaldarmataræði. 

Katie Couric hefur tekið mataræðið í gegn í heimsfaraldrinum.
Katie Couric hefur tekið mataræðið í gegn í heimsfaraldrinum. Skjáskot/Instagram
View this post on Instagram

A post shared by Katie Couric (@katiecouric)



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál