Þegar kvíðinn ræðst á þig

Sara Pálsdóttir lögmaður og dáleiðari.
Sara Pálsdóttir lögmaður og dáleiðari. mbl.is/Kristinn Magnússon

„Ég glímdi við alvarlegan kvíða í mörg ár. Kvíðinn tók yfir flest svið lífs míns og stjórnaði því. Kvíðinn réðst á sjálfsmyndina mína með stöðugu neikvæðu sjálfsniðurrifi, „þú ert ekki nógu góð, þér mun mistakast, aðrir eru að dæma þig, þú sagðir/gerðir eitthvað vitlaust, þú lítur illa út, þú ert vonlaus..“ osfrv.

Kvíðinn réðst á vinnuna mína, gerði mig óörugga í starfi, fékk mig til að efast stöðugt um eigin getu og ágæti í vinnu,“ Sara Pálsdóttir lögmaður og dáleiðari í sínum nýjasta pistli: 

Kvíðinn réðst á frítíma minn svo að ef ég fór t.d. í utanlandsferð, þá var ég með ferðakvíða í aðdraganda ferðarinnar, stöðugar áhyggjur af ferðalaginu. Skyldi ég hafa gleymt einhverju, týnt vegabréfinu, kannski yrði ég rænd eða voru hryðjuverkamenn á ferð til að sprengja upp flugvöllinn?

Kvíðinn réðst á fjölskyldulíf mitt og eftir að ég átti eldri son minn var ég lömuð af kvíða hvern einasta matmálstíma því ég var svo hrædd um að matarbiti myndi standa í syni mínum og hann kafna. Ég skar allan mat í pínulitla bita og beið af mér hvern matmálstíma með kvíðahnút í maganum.

Samhliða versnandi kvíða fór heilsufar mitt almennt versnandi. Ég var með króníska vöðvabólgu, verki í kjálkum, öxlum og baki. Stundum fékk ég random verki í handleggi eða fótleggi, svokallaða flökkuverki“. Og ég var örþreytt, alltaf geispandi, aldrei úthvíld. Suma daga átti ég mjög erfitt með að vinna vinnudaginn, þegar klukkan var 12 á hádegi þurfti ég jafnvel að leggjast niður og hvíla mig. Ég var svo þreytt og verkjuð. Kvíðinn hélt áfram að ljúga að mér: „þú verður öryrki, þú ert bara sjúklingur, þú munt ekki geta séð fyrir fjölskyldunni þinni... osfrv“. Ég afplánaði lífið og naut einskis.

Enginn virtist geta hjálpað mér, hvorki læknar, sjúkraþjálfarar, osteopatar, kírópraktorar, bitkjálkasérfræðingar, sálfræðingar, ég reyndi allt sem mér datt í hug en engin varanleg lausn var í boði. Ég var alltaf jafn verkjuð og það fór bara versnandi. Sjúkraþjálfarinn óttaðist að ég væri með vefjagigt, öll einkennin pössuðu.  

Í algerri örvæntingu fór ég að stunda hugleiðslu með þeim ásetningi að fá bata. Á hverjum einasta degi settist ég niður og þvingaði hugann til að fókusa á batann. Alla daga. Fljótlega fór ég að finna áhrif sem ég síðar skildi að um var að ræða heilunarkraft sem býr í undirmeðvitund okkar allra. Við tók stórkostlegasta bataferðalag lífs míns. Í gegn um hugleiðslu, dáleiðslu og orkuheilun tókst mér að fjarlægja rætur kvíðans, rætur verkjanna og síþreytunnar. Með því að endurnýja hugarfarið, með því að öðlast heilbrigt hugarfar, náði ég varanlegum og fullum bata frá öllum þessum neikvæðu einkennum. Ég hef lært það að hugsanir okkar skipta grundvallarmáli fyrir lífsgæði og heilsufar okkar.

Í dag lifi ég kraftmiklu, heilbrigðu og hamingjuríku lífi. Ég er algerlega frjáls frá öllum óheilbrigðum kvíða. Ég er 100% verkjalaus, frjáls frá vöðvabólgunni og líður ótrúlega vel í öllum líkamanum. Ég er orkumikil, hraust og finn sjaldan fyrir þreytu. Ég get auðveldlega unnið heilan vinnudag og samt haft næga orku til að sinna börnunum mínum og heimili eftir vinnu. Ég er með heilbrigða og sterka sjálfsmynd og hef sjálfsöryggið til að elta drauma mína og vera ég sjálf. Ég nýt þess að vera með börnunum mínum, að vera í vinnunni að lifa lífinu.

Síðan ég fékk þetta frelsi hef ég með dáleiðslu og námskeiðum hjálpað öðru fólki sem er í þeim sporum sem ég var áður að fá frelsi og bata. Það er nefnilega til uppskrift að heilbrigði, frelsi, bata og hamingju. Hún er til og hún er í boði fyrir alla. En það er vinna að fá frelsi, það þarf að leggja þá vinnu á sig en ég get lofað þér því að það er margfalt þess virði!

Ef þú hefur áhuga á að kynna þér betur hvað þú getur gert til að fá frelsi bendi ég á opnu facebook grúppuna mína Frelsi frá kvíða. Þar er að finna fyrirlestra, dáleiðslur, fræðslu um það hvað ég gerði til að fá mitt frelsi og bata, hvað veldur kvíða, hvað getum við gert sjálf, o.fl.

Lífið er allt of stutt, fallegt og dásamlegt til að lifa því í kvíða, verkjum og eymd. Þú hefur mikla meira vald yfir heilsu þinni og líðan en þú heldur. Komdu með í bataferðalag!

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál