Við Tjarnargötu í Reykjavík stendur afar sjarmerandi íbúð með mikla sérstöðu. Hátt er til lofts og vítt til veggja. Um er að ræða rishæð á tveimur hæðum. Grunnflötur íbúðarinnar er 80 fm en í íbúðinni eru 39 fm þar sem ekki er alveg full lofthæð eða um 1,8 metrar.
Viðarinnrétting er í eldhúsinu, sem er opið inn í stofu. Allt er hvítmálað og lítið um óþarfa prjál. Ljós húsgögn prýða íbúðina og er andrúmsloftið afslappað. Eins og sjá má hefur þessi íbúð mikla sérstöðu ásamt því að vera staðsett á fallegasta stað í hjarta miðborgar Reykjavíkur.