Erna Einarsdóttir hönnuður er manneskjan á bak við nýja teppalínu Geysis sem unnin er úr afgöngum. Línan er ekki bara falleg heldur umhverfisvæn. Erna útskrifaðist sem fatahönnuður hjá Central Saint Martins, College of Art and Design, í London og eftir nám fékk hún vinnu hjá Yves Saint Laurent í París áður en hún flutti til Íslands.
Leggur Geysir mikið upp úr því að vera umhverfisvænt fyrirtæki?
„Já, við gerum það. Í dag höfum við fært alla framleiðslu til Evrópu og fókuserum á að vinna með gæðavottuðum efna-, garn- og fataframleiðslum. Markmiðið er að vera meðvitað fyrirtæki þegar kemur að umhverfinu og ég tel okkur vera það og alltaf meira og meira, enda er það þróunin í heiminum.
Við vinnum til dæmis með gæðavottaða ítalska og skoska ull og vinnum með efni sem eru frá fyrirtækjum í „the better cotton initiative“, bara sem dæmi.
Efna- og fataframleiðendur eru alltaf að verða betri og betri í að bjóða umhverfisvænar lausnir og ég tek því fagnandi þegar ég get valið falleg efni og garn sem er frá framleiðendum sem hugsa um umhverfið og eru að reyna að vera hluti af lausninni,“ segir hún.
Erna hannaði teppin eða reglurnar sem ofið var eftir eða grunninn.
„Upphaflega var ég síðan að reyna að litaraða öllu en í lokin var svo gaman að hafa þetta allskonar að ég vildi láta hvert teppi vera bara einhvernveginn. Það var ekki hægt í lokin að raða litunum, því að það voru fáir litir eftir og framleiðandinn nýtti þá til fulls með því að vefa afganga hér og þar.“
Hvernig er heimilistískan að þróast?
„Ég held að heimilis- og textíliðnaðurinn sé að hreyfast í sömu átt og fataiðnaðurinn; fleiri eru að huga að umhverfinu og finna lausnir á vandamáli framtíðarinnar í gegnum hönnun. Heimilistískan er líka að verða litríkari og fólk er aftur að finna not fyrir gömlu húsgögnin hennar ömmu. Mér finnst til dæmis alltaf gaman að raða saman óvæntum og litríkum hlutum. Ég held að almennt séum við að færast fjær þessu svart-hvíta og svona pjúra minimalisma yfir í meiri litagleði og meira „eclectic“.“