Himnasending fyrir fólk sem dreymir um sumarbústað

Hér er einstakt útsýni yfir óspillta náttúru.
Hér er einstakt útsýni yfir óspillta náttúru. Ljósmynd/Gunnar Sverrisson
Bókin bústaðir eftir Höllu Báru Gestsdóttur og Gunnar Sverrisson.
Bókin bústaðir eftir Höllu Báru Gestsdóttur og Gunnar Sverrisson.


Draumur margra er að eignast sumarbústað þar sem viðkomandi getur slakað á, lesið bækur, notið náttúrunnar og gert fallegt í kringum sig. Ef þig dreymir um sumarbústað eða átt sumarbústað en vantar hugmyndir um hvernig megi breyta eða bæta er nýjasta afurð Höllu Báru Gestsdóttur innanhússhönnuðar og Gunnars Sverrissonar ljósmyndara eitthvað fyrir þig. 

Halla Bára og Gunnar hafa gefið út nokkrar bækur um íslensk heimili, hönnun og sumarbústaði en þau reka líka vefinn home and delicious. Fyrsta bók þeirri um sumarbústaði kom út 2006 og fundu þau fyrir áhuga fólks á nýrri bók um það efni. Í bókinni bústaðir er að finna 200 ljósmyndir og umfjöllun um 17 sumarbústaði.

„Við ákváðum að taka sumarið og haustið í þessa vinnu og fórum um allt land til að safna húsum í bókina. Þau teygja sig í alla landshluta, eru af öllum stærðum og gerðum, ólík í eðli sínu, notuð á ólíkan hátt, henta ólíkum lífsstíl fólks og því sem sóst er eftir en eiga það sammerkt að vera tenging við náttúruna og sveitina. Það að komst úr nið stærri bæja og borgarinnar og gefa hversdagslífinu annað vægi, oft og tíðum sækja í einfaldara líf, slökun og hugarró er eftirsóknarvert,“ segir Halla Bára.

Bókin kemur formlega út í næstu viku og verður seld í öllum helstu bókaverslunum landsins, í Epal og í Haf Store.

Halla Bára Gestsdóttir innanhússhönnuður.
Halla Bára Gestsdóttir innanhússhönnuður. Ljósmynd/Gunnar Sverrisson
Ljósmynd/Gunnar Sverrisson
Í þessum bústað ríkir afslöppuð stemning.
Í þessum bústað ríkir afslöppuð stemning. Ljósmynd/Gunnar Sverrisson
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál