Selja húsið fimm mánuðum eftir kaupin

Ellen DeGenerers og Portia de Rossi hafa keypt og selt …
Ellen DeGenerers og Portia de Rossi hafa keypt og selt hátt í tuttugu hús á síðustu áratugum. AFP

Spjallþáttastjórnandinn Ellen DeGeneres og eiginkona hennar Portia de Rossi hafa sett hús sitt í Montecito í Kaliforínu á sölu. Það vekur athygli því húsið keyptu þær í september á síðasta ári. Montecito er vinsæll staður á meðal ríka og fræga fólksins en á meðal nágranna í bænum eru Harry Bretaprins og Meghan hertogaynja.

Húsið keyptu þær á 12 milljónir bandaríkjadala á síðasta ári en vilja nún 13,9 milljónir fyrir það. Um er að ræða 369 fermetra hús með þremur svefnherbergjum og fjórum baðherbergjum. Samkvæmt heimildum Dirt fóru hjónin í einhverjar framkvæmdir á húsinu en þær tóku ekki langan tíma. 

DeGeneres og de Rossi hafa farið mikinn á fasteignamarkanum undanfarna tvo áratugi og hafa keypt og selt hátt í tuttugu hús að því er fram kemur í Architechtural Digest. DeGeneres sagði í viðtali árið 2011 að það væri hennar leið í fjárfestingum. Um leið og hún eignaðist peninga hafi hún keypt hús og svo fleiri. 

Ljósmyn/Blake Bronstad/Riskin Partners Estate Group
Ljósmyn/Blake Bronstad/Riskin Partners Estate Group
Ljósmyn/Blake Bronstad/Riskin Partners Estate Group
Ljósmyn/Blake Bronstad/Riskin Partners Estate Group
Ljósmyn/Blake Bronstad/Riskin Partners Estate Group
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda