Við Keldugötu í Urriðaholtinu er að finna afar glæsilegt 324 fm einbýli sem var reist árið 2012. Mikill sjarmi er yfir eigninni sem er á tveimur hæðum og státar af fimm svefnherbergjum og þremur baðherbergjum.
Eldhús, stofa og borðstofa eru samliggjandi í björtu og rúmgóðu alrými með mikilli lofthæð og síðum gluggum. Sérsmíðaðar innréttingar úr brúnbæsaðri eik prýða eignina, þar á meðal eldhúsið sem er með góðu skápa- og vinnuplássi. Á borðum og á eyju má svo sjá terrazzo-stein sem tónar vel við gólfið, en í eigninni má annars vegar sjá terrazzo-steypu á gólfi og hins vegar gegnheila brúnbæsaða eik.
Frá alrýminu er heillandi útsýni yfir náttúruna í kring, meðal annars yfir Vífilsstaðarvatn, golfvöllinn í Setbergi og upp í Heiðmörk. Fallegir húsmunir eru einkennandi í rýminu, en þar að auki býr gasarinn í stofu til afar notalega stemningu.
Gengið er niður á neðri hæðina um steyptan stiga með terrazzo-þrepum. Á neðri hæðinni má meðal annars finna lúxus hjónasvítu með fataherbergi og baðherbergi.