Alltaf með standandi veislu á gamlárs

Gísli Marteinn Baldursson segir að gamlárskvöld sé mikill veisludagur hjá …
Gísli Marteinn Baldursson segir að gamlárskvöld sé mikill veisludagur hjá fjölskyldunni. mbl.is/Kristinn Magnúsosn

Gísli Marteinn Baldursson er að eigin sögn mikið jólabarn, en hann hefur mjög gaman af öllu jólastússi. Þrátt fyrir það segist hann ekki halda fast í margar jólahefðir, heldur spili fjölskyldan jólahaldið eftir eyranu.

„Jólahefðirnar eru ekkert mjög margar, en alveg síðan við eignuðumst eldri dóttur okkar höfum við verið heima á aðfangadagskvöld. Fyrst við þrjú, svo bættist önnur dóttir við, og höfum við haldið okkar litlu og tiltölulega látlausu jól saman síðan þá,“ segir Gísli Marteinn, spurður að því hvaða jólahefðir hann haldi í heiðri.

„Í seinni tíð urðu dæturnar síðan vegan þannig að jólakræsingarnar eru allar saman án dýraafurða. Engin dýr þurfa því að deyja eða kveljast til þess að við getum notið aðfangadagskvölds,“ segir Gísli Marteinn og bætir við að dýrindis grænmetis-Wellington sé iðulega á boðstólum.

„Áður ef við fórum út í það vorum við með kjöt-Wellington. Ég reyndar borða allt sjálfur, en mér finnst miklu skemmtilegra ef við borðum öll sama matinn. Grænmetis-Wellington er sjúklega gott og gefur kjötinu ekkert eftir. Þetta er talsverð vinna, aðfangadagurinn fer svolítið í það að útbúa þessa steik, en það er þess virði. Steikin er gerð með graskeri, villisveppum og smjördeigi, sem þó inniheldur ekkert smjör. Ég hef aðeins verið að prófa mig áfram og þetta hefur alltaf lukkast frábærlega. Með þessu berum við síðan fram sætkartöflumauk, eða bara það sem okkur dettur í hug þau jólin. Svo förum við í jólaboð á jóladag og annan í jólum til foreldra okkar. Við tökum venjulega afganginn af grænmetis-Wellingtoninu með og það slær alltaf mikið í gegn. Enda eru menn að borða yfir sig af ofsöltuðu kjöti um hátíðirnar,“ segir Gísli Marteinn, sem segist ekki vera búinn að ákveða hvað verði í eftirrétt þessi jól.

„Þær eru orðnar svo stórar stelpurnar að við ákveðum í sameiningu hvað okkur langar mest í fyrir hver jól. Við erum þó ekki búin að ákveða hvaða eftirrétt við verðum með núna. Venjulega erum við alltaf svo södd eftir matinn að við förum bara og opnum pakkana og fáum okkur eftirréttinn svo einhvern tímann seinna um kvöldið. Desertinn er ekki risastórt atriði.“

Eini fjölskyldumeðlimurinn sem ekki fær vegankræsingar á jólunum er heimilishundurinn Tinni. Að sjálfsögðu fær hann þó að gera sér dagamun, enda jólin bara einu sinni á ári.

„Hann er ekki vegan þannig að hann fær lifrarpylsu og rjóma og trúir ekki eigin bragðlaukum, enda borðar hann að jafnaði þurrfóður,“ segir Gísli Marteinn og skellir upp úr. „Það er svolítið gaman að eiga gæludýr um jólin því þau eru svo glöð hvað við erum mikið heima. Það er eitthvað hátíðlegt við það að gleðjast með málleysingjunum,“ bætir Gísli við.

Jólamánuðurinn er jafnan viðburðaríkur hjá fjölskyldu Gísla Marteins, en eiginkona hans og dóttir eiga báðar afmæli í desember. Desember einkennist því af mikilli gleði og skemmtilegum veisluhöldum.

„Það er afmælisdagur á milli jóla og nýárs og svo á eldri dóttir mín afmæli á gamlársdag. Það er rosalega skemmtilegt, en frá því hún fæddist höfum við haft opið hús og standandi veislu allan gamlársdag. Þeirri veislu lýkur síðan klukkan 17, en í kringum 18 koma kvöldverðargestir í hús. Við erum iðulega með 15 manna veislu á gamlárskvöld og mikið stuð. Mjög fljótlega eftir jól skiptum við því um gír og förum að horfa meira til gamlárskvölds. Þá er öðruvísi stemning, þótt hún sé ekki síður skemmtileg.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál