Annar af skiptastjórum WOW air, Sveinn Andri Sveinsson, lét Lagadaginn 2019 ekki framhjá sér fara. Lagadagurinn er haldinn í Silfurbergi í Hörpu en um er að ræða málþing og kvöldskemmtun um allt sem varðar lögfræði í sinni víðustu mynd. Eftir að dagskrá dagsins lauk tók við skemmtun sem endar á Pallaballi. Þar eru Auður Björg Jónsdóttir og Eggert Páll Ólason veislustjórar.
Hægt er að fylgjast með skemmtuninni á Instagram undir #lagadagur2019